| has gloss | isl: Lagasyrpur er 33-snúninga LP-hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1965. Á henni flytja Fjórtán fóstbræður ásamt Elly Vilhjálms og hljómsveit Svavars Gests lagasyrpur. Ríkisútvarpið annaðist hljóðritun hljómplötunnar, en hún var steypt hjá Nera a.s. í Noregi. Rafn Hafnfjörð tók forsíðumyndina, sem er úr garði Alþingishússins. Mynd á baksíðu tók Pétur Þorsteinsson. Setningu á plötuumslagi annaðist Prentsmiðja Jóns Helgasonar. Myndamót, prentun og umslag annaðist Kassagerð Reykjavíkur. |