| has gloss | isl: Rafha er fyrirtæki í Hafnarfirði sem í um það bil hálfa öld framleiddi raftæki, en hefur nú hætt framleiðslu þeirra og sérhæfir sig í innflutningi á raftækjum og innréttingum. Fyrirtækið var stofnað þann 29. október 1936 og sérhæfði sig fyrst í framleiðslu rafmagnseldavéla en síðar allra helstu heimilistækja. Framleiðsla Rafha var talin vera til ómetanlegs hagræðis á styrjaldarárunum, auk þess sem hún sparaði ríkinu drjúgan gjaldeyri. Í árslok 1960 hafði verksmiðja fyrirtækisins framleitt 86.000 raftæki af meira en þrjátíu gerðum, fyrir utan 11.000 ljósatæki. Árið 1986 opnaði Rafha 700 fermetra verslunarhúsnæði í gömlu verksmiðjunni í Hafnarfirði. |